9.1.2009 | 23:12
Ekki, alls ekki, reyna að traðka á Hafnfirðingum
Stöndum saman Hafnfirðingar, oft var þörf, nú er nauðsyn. Látum ekki ríkisstjórnina traðka á okkur á skítugum skónum. Hafnafjörður þarf þessi störf og þá þjónustu sem er veitt á þessum spítala. Ef á að gera einhverjar tilraunir með heilbrigðisþjónustuna þá er okkur að mæta.
Ef okkur tekst ekki að hindra þetta mæli ég með að þau félagasamtök sem hafa gefið spítalanum tæki og tól hreinlega sæki þau áður en ATHAFNARMENN EÐA FJÁRFESTAR stela þeim.
Samfylkingin í Hafnarfirði mótmælir harðlega tillögum ráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Er 100% sammála þér. Vrknaður Guðlaugs er honum til skammar og þjóðinni til skapraunar
Dunni, 10.1.2009 kl. 09:40
Er líka 100% sammála, þó ég búi sjálfur í Reykjavík. Þurfti þó síðasta vetur að sækja þangað þjónustu og mér líkaði afbragðsvel bæði við starfsfólk og það umhverfi sem spítalinn rammar utanum starfssemina. Þetta má alls ekki gerast, bara alls ekki og þetta er ekki bara mál Hafnfirðinga, heldur alls Höfuðborgarsvæðisins. Stöndum saman
Máni Ragnar Svansson, 11.1.2009 kl. 12:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.