7.10.2008 | 08:35
Slökkt á útvarpi og sjónvarpi!
Það var léttir að koma heim klukkan hálf 7 í gærkvöld. Maðurinn minn búinn að elda hakk og spaghettí og slökkva á sjónvarpinu og útvarpinu, barnið búið að læra og allt í rólegheitunum.
Við sáum svo bara nýjustu fréttir áður en við fórum að sofa og í morgun eftir að barnið var farið í skólann, misstum ekki af neinu merkilegu.
Mæli með þessu.
Ég kem heim á undan manninum í dag svo nú verð ég að standa mig allavega jafnvel, helst betur!
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.