5.6.2008 | 16:59
Sól, rigning og sumarfrí
Í dag held ég að ég sé bara oggu-lítið abbó út í eina systur mína. Hún skrapp nefnilega til sólarlands og kemur ekki heim aftur fyrr en eftir ca 6 vikur. Hugsið ykkur bara að vera í bongó blíðu langt fram í júlí. Jæja ég verð bara að vona að hér stytti upp og sólin skíni allar helgar í júní og hreinlega alla daga í júlí, það má rigna á nóttunni. Sendi ykkur í sólinni samt mínar allra bestu kveðjur héðan úr rigningunni og rokinu.
Annars held ég að sumarið hér verði svolítið upp og (en því miður aðeins meira) niður.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.