26.4.2008 | 00:57
Ungfrú Ísland!
Núna var ég að enda við að horfa (með öðru auganu og með köflum) á krýningu ungfrú Ísland.
Allar stúlkurnar dásamlega huggulegar og vel þjálfaðar, engin datt (held ég).
Ég vona bara að þeir láti laga kórónu drusluna fyrir næstu keppni svo aumingja ungfrúin þurfi ekki að standa eins og flón með kórónuna á öðru eyranu. Kemur sennilega ekki vel út á forsíðum blaðanna á morgun!
Svo mætti alveg biðja kynnana að bæta málfarið,dæmi bjóðum Jónínu Jónsdóttir velkomna á sviðið, auðvitað á þetta að vera Jónínu Jónsdóttur... og ef um dömu sem heitir tveimur nöfnum var bara happa og glappa hvort bæði nöfnin beygð. Öllum getur orðið ,,fótaskortur á tungunni'' bara ekki alveg svona oft.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.