Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál
8.5.2008 | 15:25
Tveir með öllu
Munið þið eftir Tveir með öllu á Bylgjunni. Jú með Jóni Axel og Gulla Helga. Jæja ef ekki er það fyrirgefið, en ég rakst á svona skólakompu 1992-1993 (bók með skóladagatali) frá Eymundsson í kassa með gömlu dóti og tímdi ekki að henda henni án þess að skoðana aðeins fyrst. Í þessari bók Sem kostaði heilar 880 kr. kennir margra góðra grasa til dæmis er þar form fyrir fjárhagsáætlun sem hljóðar svo:
INN
Launatekjur
Arfur
Happdrættisvinningar
Lottó
Fundið fé
Gjafir
Matur frá foreldrum
Tekjur vegna sölu notaðra muna
Gjafir frá ættingjum
Óafturkræf lán
Námslán
Annað
Út
Út að borða
Út að drekka
Út að aka
Föt
Skemmtanir
Námsbækur
Til líknarmála
(Dragðu liðin út frá liðnum inn, deildu svo með tveimur í upphæðina, margfaldaðu síðan með -0,1 dragðu svo 937.000 frá. Ef útkoman er yfir 200.00 kr. skaltu láta leggja þig inn einhverstaðar.)
Tilvitnun líkur!
Datt bara í hug hvort að þeir sem hafa verið að stjórna fjármálafyrirtækjum landsins hafi kannski notað aðallega þessa aðferð við bókhaldið undanfarin ár!