Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
9.1.2009 | 22:49
Sameinuð stöndum við
Stöndum saman Hafnfirðingar, oft var þörf, nú er nauðsyn. Látum ekki ríkisstjórnina traðka á okkur á skítugum skónum. Hafnafjörður þarf þessi störf og þá þjónustu sem er veitt á þessum spítala. Ef á að gera einhverjar tilraunir með heilbrigðisþjónustuna þá er okkur að mæta.
Ef okkur tekst ekki að hindra þetta mæli ég með að þau félagasamtök sem hafa gefið spítalanum tæki og tól hreinlega sæki þau áður en ATHAFNARMENN EÐA FJÁRFESTAR stela þeim.
Skorað á Hafnfirðinga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 22:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.1.2009 | 21:36
Látum þetta ekki gerast
VG í Hafnarfirði lýsir yfir samstöðu með St. Jósefsspítala | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.1.2009 | 20:53
Hvers vegna?
Getur einhver frætt mig á því hvers vegna þessir aðilar nota kol?
Annars finnst mér þetta varla nema hálf frétt en kannski á þetta að vera framhaldsfrétt og til að halda spennunni er ekkert gefið uppi um ástæður og afleiðingar af þessu athæfi.
164 þúsund tonnum af kolum brennd hér árlega | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 20:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
8.1.2009 | 15:35
Heilagur Jósef
Er kannski heilagur Jósef, sem spítalinn í Hafnarfirði er kenndur við, eitthvað að stríða Guðlaugi?
Fyrst Akureyri svo Keflavík, kannski Landspítali verði næstur, vonandi að þessi veira valdi ekki neinum alvarlegum skaða.
1.1.2009 | 11:47
Samsæriskenning dregin upp úr hvítvínsglasi
Eftir að hafa úðað í mig áramótasteik og nærri heilu glasi af hvítvíni fór heilinn í gang með hávaða og látum við dræmar undirtektir gesta minna.
Jú það var nefnilega þetta með Kryddsíldina. Geir okkar komst aldrei í útsendingu.
,,Í Sjáfstæðisflokknum eru nefnilega menn sem töldu að ekki væri hollt fyrir hann að lenda í þriðju gráðu yfirheyrslu í beinni útsendingu á gamlársdag. Nonni talaði við Bjössa sem talaði við Halla sem talaði við Kalla sem þekkir Gunna, sem er atvinnumótmælandi. Kalli segir Gunna að sniðugt væri að koma í veg fyrir að hægt sé að senda út frá Borginni. Gunni talar við gamlann félaga sem vann einu sinni í sjónvarpinu sem tæknimaður. Og bim bam búm, bara að klippa á kapalinn".
Eins gott að ég drakk bara eitt glas, hver veit hvað fleira hefði komið upp á yfirborðið.
1.1.2009 | 11:18
Til hamingju Ísland, með nýtt ár!
Kæru ættingjar, vinir og bara Íslendingar allir, Gleðilegt og farsælt nýtt ár!
Vonandi hefur gamla árið endað vel hjá öllum og ég segi eins og Dóri vinur, verið sprengt mörg ljósár út í geim. Nýja árið byrjar vel hér stór Hafnarfjarðarsvæðinu, alla vega veðurfarslega og ætla ég að nýta mér það og ganga af mér áramótasteikina. Hafið það öll sem best og ég hlakka til að hitta ykkur sem fyrst.
9.12.2008 | 15:55
Leyninúmer
Tæknivæðingin undanfarin 100 árin er þvílík að við náum varla að fylgja henni eftir nema í nokkra áratugi. Þegar einhver er t.d. orðinn eldri borgari er algengt að hann ,,nenni ekki" að læra á nýjustu tækin, finnist hreinlega komið nóg.
Ég er reyndar ekki alveg orðin eldri borgari en ég nenni samt ekki lengur að læra ný leyni-og aðgangsorð. Mér finnst komið nóg. Að gamni mínu gerði ég lista yfir leyniorð sem ég þarf að muna dagsdaglega og þau eru bara ekki svo fá.
Endaði í 25 en er viss um að ég er að gleyma einhverjum sem ég nota sjaldnar.
22.11.2008 | 09:08
Hótel, barir, leikhús og búðir
Það hefur alveg gleymst að nefna hvað Íslendingar hafa verið duglegir að styrkja Breska ferðaþjónustu og verslun, síðustu áratugina.
Við hoppuðum yfir hvenær sem tækifæri gafst og eyddum þar ómældu fé. Það væri gaman að vita hvort það hefur verið tekið saman af hagstofunni eða einhverum, hvað þetta hefur skilað Bretum miklu.
Ég hugsa að hótelin sakni okkar, að ég tali nú ekki um verslanirnar.
Það ætti að gera frétt um það hvað þessir aðilar eru að verða af miklum tekjum í dag.
Bretland sömu leið og Ísland? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.10.2008 | 16:16
Ryðgaður Baugur
Dularfullur hringur yfir Reykjanesbæ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.10.2008 | 09:18
Volga og lada, fyrirtaks bílar
Það rifjast ýmislegt skrítið upp fyrir manni þessa dagana þegar talið berst að Rússum.
Ég sé alltaf fyrir mér dökkgræna volgu, glænýja, úr kassanum á nýsteyptu bílastæðinu við Norðurgötu 56 á Akureyri. Þetta var fyrsti nýji bíllinn sem mamma og pabbi eignuðust og ef ég man rétt fyrsti bíllinn sem ég keyrði. Mamma og pabbi voru virkilega stolt af honum og ég man að mér fannst þetta lang fallegasti liturinn á þessum bílum sem voru allir mjög dökkir og svona smá klassi yfir þeim.
Ég var auðvitað ekki komin með prófið en pabba fannst samt allt í lagi að ég fengi að keyra nokkra metra á beinum vegi sem liggur inn í Ásbyrgi. Þessi bíll reyndist okkur vel og það æxlaðist svo að þegar bíllinn var seldur var það ég sem sá um að taka við greiðslunni þar sem mamma og pabbi voru stödd í Reykjavík. Reyndar hjálpaði Hermann frændi til en ég var mjög ánægð með að við fengum meira fyrir hann en áætlað var. Mynnir endilega að Volgan hafi verið seld á 1.1 milljón gamlar krónur.
Mamma var svo ánægð með rússneska bílinn að næst var keypt appelsínugul lada 1600 og þann bíl keyrði ég fyrst eftir að ég fékk prófið, mamma var dugleg að lána mér hann í skólann og á rúntinn.
Það var alveg merkilegt hvað bíllinn var góður í snjó en hann var náttúrulega afturhjóladrifinn svo mamma setti bara sandpoka í skottið til að þyngja hann nú eða þá að Stjáni frændi var látinn sitja aftur í, ef þurfti að fara upp brekku í hálku. Alltaf var líka hægt að sækja smá sand í skottið og setja framan og aftan við afturhjólin þegar þurfti að komast upp Þórunnarstrætið í fljúgandi hálku.
Síðar hef ég líka keyrt ótrúlega endingaágóðann lada sport. Bíllinn seldur í fullu fjöri eftir að km mælirinn var komin svo langt á annan hringinn að kaupandanum datt ekki í hug annað en bíllinn væri enn á fyrsta hringnum. Galdurinn við þessa bíla var að keyra þá skynsamlega (á löglegum hraða) og smyrja þá við hvert tækifæri.
Þessa bíla var kannski ekki hægt að keyra mjög hratt, minnir samt að ég hafi komið sportaranum í 110 án teljandi vandræða. Er það bara ekki akkúrat meir en nóg í landi þar sem hámarkshraðinn er hvergi meiri en 90?
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 09:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)