Raunveruleg spá?

Hvenær er spá ekki óraunveruleg? Eftir að hún hefur ræst. Er að spá í helgarferð í sól og blíðu.  Hvað kostar flug á Egilsstaði fyrir 3.Cool

 


mbl.is Næstum óraunveruleg veðurspá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enginn smá misskilningur

í gangi í 2 ár og fékk greyið aldrei borgað?   250 þús. Þetta er eins og full mánaðarlaun meðal Gunnunnar í verslun.ErrmCryingShocking


mbl.is Samtök dæmd til að greiða starfsmanni laun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott á sviðinu

Til hamingju Regína,  Friðrik og co. Þið voruð flott og gerðuð þetta frábærlega vel, hvort sem þið komist áfram eða ekki.Grin


mbl.is Örlögin í höndum Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sagan endalausa

Eins og svo oft áður ofsaakstur. Allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi. Við getum ef við viljum fækkað svona slysum mikið.Angry
mbl.is Sluppu ótrúlega vel úr mjög hörðum árekstri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hillary notar öll trompin

Það virkar alltaf vel að hampa börnum kjósendaTounge
mbl.is Clinton spáð sigri í Kentucky
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofsaakstur-glæpaakstur

Þetta eru þeir sem ekki vilja setja hraða-takmörkunar-búnað í bifreiðar. Til hvers þurfa bílar að geta ekið á yfir 120km þegar hvergi má keyra hraðar en 90? Sleppið því að minnast á sjúkra-bruna-og löggubíla.
mbl.is Tekinn á 170 km. hraða á Laugarvatnsvegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Börn og gamalmenni

Var að spá í hvort álftirnar miðuðu við 67 ára  eins og TR eða 60 ára eins og félag aldraðraTounge
mbl.is Álftarungar á Bakkatjörn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað má koma fyrir í gríni?

Smá listi yfir það sem sumir vilja ekki að gert sé grín að (í handahófskenndri röð):

Litarháttur, háralitur  (sérstaklega rauður), kyn manneskju, aldur (og fyrri störf).

Útliti:litarhaft freknótt, nefstór, eyrnastór, hálslöng, hálsstutt, höfuðstór, höfuðlítil, hávaxin, lávaxin, mjó, feit, fótstór. 

Ástandi: lifandi, dáin, veik, fötluð, meidd, reið, glöð, móðguð, fúl, hress, full, dópuð, sofandi, vakandi, milli svefns og vöku, rugluð, gleymin, sorgmædd, döpur og svo framvegis.

Starfsheiti manneskju eða því sem hún vinnur við:Prestur, læknir, hjúkka ó afsakið hjúkrunarfræðingur, sorphirðir, ræstitæknir, afgreiðslumaður, afgreiðslustúlka, kennari, smiður, pípari, málari, rukkari, bílstjóri, flugmaður (þeir allir fordæmdir sem fyllibyttur ef gert er grín að einhverjum sem tekin er fullur á leið í vinnu).

Það er líka sagt ljótt að gera grín að landi, segja að það sé rok rass, ljótt, eða flatt.

Dýrum á ekki að hlæja að, jafnvel fjarstöddum, þeim gæti sárnað.

Farsímum: Þessi er nú meiri klumpurinn, eða forngripurinn. 

Fatnaði fólks og ekki orð um það meir.

,,Tæknilegum'' mistökum fólks.

Kjánagangi fólks.

Nú er nóg komið.

Kannski er bara best að taka hlutina ekki of alvarlega, ekki of túlka alla hluti, sérstaklega brandara, þeir eru hvort sem er í alvarlegri útrýmingarhættu.Tounge

 


Hjálpi þeim allar góðar vættir

og heimurinn allur!

Sannarlega krefjandi verkefni!

Hvernig reddar maður húsaskjóli, matvælum, drykkjar-og þvottavatni, hreinlætisaðstöðu, rúmum, fatnaði og öðrum nausynjum handa 5 milljón manns. Þetta þarf að gerast í dag og á svæði sem er í rúst!

Ættu svona verkefni ekki að geta komið í stað stríðsátaka, fyrir þá sem hafa mestan áhuga á hasarnum og því sem stríð bíður upp á.Angry


mbl.is Yfir 40 þúsund látnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heilsufars- og tryggingabanki

Auðvitað er þetta frábær hugmynd. Við erum búin að ræða þetta mikið í vinahóp mínum undan farið ár og viljum ganga mun lengra.

Allir þyrftu aðgang að HEILBRIGÐISBANKA, svona eins og heimabanka. Þjónustufulltrúar í svona heilsubanka hefðu það hlutverk að kynna fólki réttindi sín og útvega þá þjónustu sem viðkomandi þarf. Þetta ætti líka að geta sparað læknunum að vera endalaust pælandi einhverju öðru en því að lækna fólkið.  Hver og einn hefði þá á einum stað upplýsingar sem skipta oft miklu máli t.d. Hvenær hann fór síðast til magasérfræðings, í hjartalínurit, blóðprufu og hvað var rannsakað, hvenær og hvaða lyf var prófað. Oft er nefnilega verið að endurtaka óþarfar rannsóknir og oft kemur í ljós að eitthvað hefur alltaf gleymst eins og að tékka á skjaldkirtlinum eða blóðsykrinum.

Hverjir fleiri þurfa virkilega á ,,heilbrigðisþjónustufulltrúa eða banka'' að halda? jú t.d.: Þeir sem slasast alvarlega, langveikbörn, þeir sem glíma við geðræna sjúkdóma heyrnarlausi, blindir, fatlaðir, þeir sem eignast fötluð/veik börn, aldraðir, bara raunverulega allir, t.d. þeir sem vilja vera vissir um að ekki sé verið að leysa út lyf á þeirra nafni í einhverju apóteki.

Það eru svo margir í þeim sporum að geta ekki brunað eða hringt út um allan bæ til að sækja réttindi sín eða gögn frá læknum, sjúkraþjálfurum og apótekum. Ef þessar upplýsingar væru aðgengilegar eins og fjármálin okkar væri allt skilvirkara og minni líkur á misnotkun og mismunun t.d. vegna þátttöku TR í kostnaðinum.

Í dag er betur hugsað um að halda utan um fjármálin okkar heldur en heilsufarið!


mbl.is Umboð fyrir deyjandi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband