Sammála Jóhönnu

Ef við uppfærum svona gjörning á heimilisrekstur gæti sagan hljómað eftirfarandi: 

Gunni litli 7 ára hefur fengið að kaupa mataráskrift að heitum mat í hádeginu í skólanum.Smile

Nýlega var boðuð hækkun á gjaldskránni og foreldrar hans segja honum að nú hafi þeir ekki bolmagn til að greiða fyrir áskrift að matnum. Hann verði hér eftir að taka með sér núðlusúpu í hádeginu. Crying

En hvað gerist svo? Jú foreldrarnir panta sér helgarferð til Akureyrar til að sjá ,,Fúlar á móti" og drífa síðan í að skipta um parket á allri íbúðinni!Sick

Er það nema von að að frú forsætisráðherra sé hneyksluð?Shocking


mbl.is Siðlausir eigendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Þá er rétta skrefið næst að banna alla vesti á sparifjárbækur í bönkunum svo það verði eitthvert samræmi í þessu. Eiga ekki allir að vera jafnir fyrir þessu ?

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 17.3.2009 kl. 16:07

2 Smámynd: Hansína Hafsteinsdóttir

Ég held bara að fyrirtæki eigi fyrst að standa við skuldbindingar sínar varðandi rekstur, þar á meðal launasamninga, síðan greiða út arð og bónusa.

Hansína Hafsteinsdóttir, 17.3.2009 kl. 16:10

3 Smámynd: Svanur Sigurbjörnsson

Fín samlíking!

Predikarinn sér ekki mun á vöxtum á sparifjárbók og arðgreiðslum í fyrirtæki sem hefur beðið verkafólk um að taka á sig skerðingu launa.  

Svanur Sigurbjörnsson, 17.3.2009 kl. 16:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband